Til baka

Fortíðin í nýju ljósi: Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871) og brotakenndar heimildir.

Fortíðin í nýju ljósi: Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur (1809–1871) og brotakenndar heimildir.

Hvað er markvert að finna í bréfum frá óþekktri konu frá nítjándu öld?

Í fyrirlestrinum ræðir Erla Hulda um bók sína, Strá fyrir straumi. Ævi Sigríðar Pálsdóttur 1809-1871, sem kom út árið 2024. Bókin byggir á 250 bréfum sem Sigríður skrifaði bróður sínum Páli Pálssyni skrifara á Stapa frá því hún var átta ára gömul árið 1817 til þess hún dó tæplega 62 ára árið 1871. Hún giftist tvisvar og varð tvisvar ekkja, eignaðist sex dætur en þrjár lifðu til fullorðinsára. Erla Hulda mun segja frá ævi Sigríðar og helstu áskorunum við það að fjalla um líf konu sem rennur eftir öðrum brautum en ævisögur karla og hin svokallaða stórsaga nítjándu aldar, einnig hvernig hún notar sendibréfin, og aðrar heimildir, til að safna saman lífi Sigríðar og gera úr því samfellda sögu.

Erla Hulda Halldórsdóttir er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hún er sérfræðingur í kvenna- og kynjasögu á nítjándu og tuttugustu öld. Erla Hulda hefur birt fjölda greina um rannsóknir sínar hér á landi og erlendis. Hún er einn höfunda bókarinnar Konur sem kjósa. Aldarsaga (2020) og árið 2023 kom út bók hennar Ég er þinn elskari. Bréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur 1825–1832.

Hvar: Aðalstræti 58
Hvenær: 12. mars
Klukkan: 17:00
Aðgangur ókeypis

Fortíðin í nýju ljósi er samvinnuverkefni Akureyrarakademíunnar, Sagnfræðingafélags Íslands og Minjasafnsins á Akureyri.
Hótel Akureyri styrkir fyrirlestraröðina.

Næsti fyrirlestur og jafnframt sá síðasti:

19. mars kl. 17 Skreytingar í handritum síðari alda og þáttur af einum norðlenskum listaskrifara - Kjartan Ísleifsson, sagnfræðingur.

Hvenær
fimmtudagur, mars 12
Klukkan
17:00-17:45
Hvar
Akureyri Museum
Verð
Ókeypis