Til baka

Frá Kaupfélagsgili til Listagils

Frá Kaupfélagsgili til Listagils

25. ágúst 2018 - 18. apríl 2021

Frá Kaupfélagsgili til Listagils
25. ágúst 2018 - 18. apríl 2021

Listasafnið á Akureyri stendur við Kaupvangsstræti eða Grófargil sem í daglegu tali er kallað Listagilið eða einfaldlega Gilið. Gatan á sér mikilvægan og glæsilegan sess í atvinnusögu Akureyrar. Um 1930 hóf samvinnufélagið KEA (Kaupfélag Eyfirðinga Akureyri) öfluga uppbyggingu iðnfyrirtækja í götunni. Mikil framsækni og gróska einkenndi áratugina sem í hönd fóru og starfsemin varð sannarlega blómleg. Ýmsar breytingar og þróun í verksmiðjurekstri kröfðust aðlögunar og smám saman færði KEA starfsemi sína úr húsunum. Akureyrarbær keypti húsin í byrjun tíunda áratugarins og opnaði „verksmiðjudyrnar“ fyrir listum og menningu.

Þessi sýning er um sögu húsanna í Gilinu og starfsemina í þeim, áður en þau hýstu Listasafnið, Deigluna, Myndlistaskólann, vinnustofur, sýningasali, veitingastaði og íbúðir. Þannig vill Listasafnið á Akureyri votta fortíðinni, sem það byggir á, virðingu og tengja gesti safnsins við söguna.

Sýningin er unnin í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri.

Sýningarstjórar: Haraldur Ingi Haraldsson og Hlynur Hallsson.

Hvenær
25. ágúst - 18. apríl
Hvar
Listasafnið á Akureyri / Akureyri Art Museum, Kaupvangsstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar