Til baka

Fremstafell – Barnafoss – Barnafell – Fellsskógur

Fremstafell – Barnafoss – Barnafell – Fellsskógur

Gengið frá Fremstafelli í Kinn að Barnafossi og áfram meðfram Skjálfandafljóti.

13. júní, laugardagur

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Jónas Jónsson

Ekið að Fremstafelli í Kinn. Þaðan er gengið að Barnafossi og haldið svo áfram eftir skógarstíg meðfram Skjálfandafljóti. Gengið aðeins upp í Fellið og svo samhliða því alveg að norðurenda þess. Síðan er gengið að Ljósvetningabúð þar sem bílarnir voru skildir eftir. Ef vel viðrar verður gengið upp á Ytri-Hnjúkinn. Heyrum sögur af svæðinu auk þess að virða fyrir okkur stórkostlegt útsýnið en frá Kinnarfelli er mikið útsýni í allar áttir. Horfum yfir Skjálfandafljót og sjáum m.a. Ullarfoss.

Ekkert drykkjarvatn er á leiðinni. Selflytja þarf bíla á milli Fremstafells og Ljósvetningabúðar.

Ef veður og útsýni er gott kemur vel til greina að sleppa bílaskutli og ganga til baka suður Fellið til Fremstafells.

Vegalengd: 12–13 km. Gönguhækkun: 250–300 m.

Hvenær
laugardagur, júní 13
Klukkan
09:00-16:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
2.700 / 4.400 kr.