Á Akureyrarvöku verður boðið upp á bókmenntadagskrá í Davíðshúsi þar sem friður og stríð er umliggjandi. Það eru hjónin Kristján B. Jónasson, bókmenntafræðingur og Gerður Kristný, skáldkona sem bera veg og vanda af dagskránni. Kristján fjallar um mótunarár Indriða G. Þorsteinssonar á Akureyri á stríðsárunum og Gerður Kristný les úrval ljóða þar sem umfjöllunarefnið er stríð og friður.
Aðgangur ókeypis.
Hvar: Davíðshús – Bjarkarstíg 6
Hvenær 29. ágúst – Akureyrarvaka
Klukkan: 13:00 – 14:00
Davíðshús verður opið frá 12 til 17.