Til baka

Fuglaskoðun í Naustaborgum

Fuglaskoðun í Naustaborgum

Barna- og fjölskylduferð á vegum Ferðafélags Akureyrar

Barna- og fjölskylduferð - Fuglaskoðun í Naustaborgum
Ferðafélag Akureyrar er með fimm ferðir á áætlun 2021 sem sérstaklega eru ætlaðar barnafjölskyldum.

Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.

Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen

Í maí er vorið að vakna og rétti tíminn til að skoða fuglana okkar. Í fuglaskoðunarferðinni ætlum við að reyna að sjá og heyra eins margar tegundir og mögulegt er og kenna ykkur að þekkja sem flesta fugla bæði staðfugla og farfugla. Tveir skrýtnir og skemmtilegir fuglakallar ætla að leiðbeina okkur við skoðunina. Gott er að hafa með sér kíki og klæða sig eftir veðri. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst.

Engin skráning! Ekkert þátttökugjald.

Hvenær
miðvikudagur, maí 19
Klukkan
17:00-19:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
Þátttaka ókeypis
Nánari upplýsingar