23. maí, laugardagur
Brottför kl. 9 með rútu frá FFA, Strandgötu 23
Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen
Fuglar skoðaðir í Friðlandi Svarfdæla. Farið verður á Böggvisstaðasand, að Flæðatjörn,
Hrísatjörn og Tjarnartjörn. Þar má búast við öllum helstu tegundum anda og vaðfugla. Flórgoði og himbrimi eru árvissir á Hrísatjörn. Á Böggvisstaðasandi verpa t.d. kría, stormmáfur, sandlóa og tjaldur. Frá Tjarnartjörn verður gengið yfir að Hánefsstaðaskógi þar sem auðnutittlingur, glókollur, músarrindill, skógarþröstur og svartþröstur verpa. Rútan kemur að skóginum og að lokum verður litið á fuglana á Saurbæjartjörn. Gott er að hafa góðan sjónauka með.