GDRN
GDRN loksins aftur á Græna Hattinum.
Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem GDRN hefur látið mikið á sér kræla í íslensku tónlistarlífi frá því hún gaf út sína fyrstu breiðskífu, Hvað ef, árið 2018. Sú hljómplata hlaut fjölda tónlistarverðlauna, tilnefningu til tónlistarverðlauna norðurlanda og mikla athygli. Síðan þá hefur hún sent frá sér fjölda laga í samstarfi við aðra listamenn sem og tvær sólóplötur til viðbótar. GDRN, árið 2020 og Frá mér til þín, árið 2024. Hún hefur þegar skipað sér sess sem ein ástælasta söngkona þjóðarinnar. Popp- tónlist, dægurperlur eða djass, GDRN er fær í flestan sjó.
Þann 11. júlí kemur hún fram á Græna Hattinum ásamt hljómsveit sinni, en hana skipa: Bergur Einar á trommur, Magnús Jóhann á hljómborð og Reynir Snær á gítar. Þau munu leika lög GDRN af hinum ýmsu plötum hennar.