Til baka

Gengið um Þorvaldsdal í minningu Bjarna E. Guðleifssonar

Gengið um Þorvaldsdal í minningu Bjarna E. Guðleifssonar

Ferðafélag Akureyrar

Gengið um Þorvaldsdal í minningu Bjarna E. Guðleifssonar

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Börn Bjarna E. Guðleifssonar leiða gönguna.
Í ár eru liðin 30 ár síðan Bjarni E. Guðleifsson stóð fyrir fyrsta Þorvaldsdalsskokkinu. Í tilefni af því býður FFA upp á gönguferð í gegnum dalinn sama dag og hlaupið fer fram. Ekið er að Fornhaga í Hörgárdal og bílar skildir þar eftir, rúta ekur þátttakendum á upphafsstað. Gengið í gegnum dalinn og að Stærra-Árskógskirkju þar sem rúta mun bíða göngufólks og flytja það til baka að bílunum við Fornhaga. Leiðin í gegnum dalinn er löng og falleg, gengið er yfir tvö stórgrýtt berghlaup, Hestahraun og Hrafnagilshraun. Á leiðinni munu hlauparar dagsins eflaust fara fram úr hópnum og gefst þá tilefni til hvatningar.
Vegalengd 23-25 km. Gönguhækkun 500 m.
Verð: 7.000/9.000. Innifalið: Fararstjórn og rúta.

Hvenær
laugardagur, júlí 1
Klukkan
08:00-18:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
7.000 kr. / 9.000 kr.