Gervigreindin og við
Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi og sérfræðingur hjá Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð byrjar haustið hjá fyrirlestraröðinni Opið hús.
Hún mun fjalla um gervigreind út frá eftirfarandi spurningum:
- Hvað er það með þessa gervigreind?
- Hvað erum við í Háskólanum á Akureyri að gera í tengslum við notkun gervigreindar
- Hvernig er hægt að nýta sér möguleika gervigreindatóla í daglegu lífi?
- Hvað ætti að hafa í huga við notkun slíkra tóla?