Til baka

Gítartónar í Davíðshúsi

Gítartónar í Davíðshúsi

Malasíski gítarleikarinn Loo Sim Ying leikur í Davíðshúsi.

Malasíski gítarleikarinn Loo Sim Ying kemur um langa veg til að flytja tónlist í Davíðshúsi miðvikudagskvöldið 27. maí kl. 20.

Á efnisskránni er fjölbreytt tónlist fyrir klassískan gítar, allt frá barokktímabilinu til nútímaverka. Þar má meðal annars heyra gavottu og menúetta úr lútu-svítu eftir J.S. Bach, spænska gítartónlist, Cavatina eftir Stanley Myers, Tango en Skaï og hinn sívinsæla tangó La Cumparsita. Þá flytur Loo Sim einnig nokkur íslensk þjóðlög.

Loo Sim Ying útskrifaðist frá Malaysia Institute of Arts og hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir leik sinn.

Hann hefur lokið bæði Associate og Licentiate Diplomas in Music Performance frá Trinity College London með hæstu einkunn, Distinction, og hlaut einnig Trinity College London Award of Excellence fyrir framúrskarandi árangur.

Loo Sim Ying hefur komið fram á tónleikum og listahátíðum í Malasíu, Singapúr, Indónesíu og á Íslandi, meðal annars á Trinity Guildhall Awards Concert, Bel Canto tónleikaröðinni í Selangor/Kuala Lumpur, JB Arts Festival, Alliance Française de Singapour og The Arts House.

Hvar: Davíðshús Bjarkarstíg 6

Hvenær: 27. Maí

Klukkan: 20:00

Aðgangur er ókeypis.

Hvenær
miðvikudagur, maí 27
Klukkan
20:00-21:00
Hvar
Davíðshús
Verð
Ókeypis