Til baka

Glæpakviss á Amtsbókasafninu

Glæpakviss á Amtsbókasafninu

Glæpakviss frá Hinu íslenska glæpafélagi um allt land 5. september!
Í tilefni af 25 ára afmæli Hins íslenska glæpafélags bjóða þau öllum lesendum glæpasagna að taka þátt í svokölluðu glæpakvissi, æsispennandi spurningakeppni sem samin er af hinum alræmda Ævari Erni Jósepssyni, formanni félagsins. Keppnin verður haldin á mörgum almenningsbókasöfnum samtímis, í aðdraganda Bókasafnsdagsins sem alltaf er fagnað í september en alþjóðlegur dagur læsis er 8. september.
 
Það er því um að gera að glugga í gamlar jafnt sem nýjar glæpasögur til að rifja upp hin plott og hrollvekjandi atburði sem íslenskir höfundar hafa sett saman í bókum sínum, okkur lesendum til ánægju og yndisauka.
 
Doddi okkar verður í hlutverki glæpakviss-stjóra. Boðið verður upp á léttar veitingar og að sjálfsögðu verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sætið.
 
Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.
Hvenær
fimmtudagur, september 5
Klukkan
16:30-18:00
Hvar
Amtsbókasafnið, Brekkugata, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald