Til baka

Gönguskíðaferð í Heiðarhús á Flateyjardal

Gönguskíðaferð í Heiðarhús á Flateyjardal

Helgarferð

Gönguskíðaferð í Heiðarhús á Flateyjardal skidiskidiskidi

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Einar Bjarki Sigurjónsson og Christina Finke
Verð: 12.500/9.500 kr. Innifalið: Fararstjórn og gisting í skála.

Gangan hefst við afleggjarann út á Flateyjardal rétt hjá bænum Þverá í Dalsmynni. Gengið sem leið liggur út í miðjan Flateyjardal en dalurinn er frábært skíðasvæði og mjög fallegur í vetrarbúningi. Gisting í Heiðarhúsum. Sama leið gengin til baka. Vegalengd um 17 km hvorn dag og meðalhækkun um 250 m. Hver og einn þarf að sjá um eigin búnað og nesti og sjá um flutning á því hvort heldur er í bakpoka eða púlku. 

Hvenær
20. - 21. mars
Klukkan
08:00-18:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar, Strandgötu 23
Verð
12.500 kr./9.500 kr.
Nánari upplýsingar

ATH. Takmarkaður fjöldi.

Skráning á www.ffa.is