Til baka

Gönguvika Ferðafélags Akureyrar

Gönguvika Ferðafélags Akureyrar

Sérstakar gönguvikur eru í boði á Akureyri og nágrenni til viðbótar við fjölbreytt úrval dagsferða og lengri ferða.

Sérstakar gönguvikur eiga sér stað árlega á Akureyri og nágrenni til viðbótar við fjölbreytt úrval dagsferða og lengri ferða á vegum Ferðafélags Akureyrar og fleiri aðila. Dagskrá gönguviknanna má finna hér fyrir neðan sem og einnig dagská annara gönguviðburða sem eiga sér stað í sumar.

Göngugarpar og annað útivistarfólk kemst í skipulagðar gönguferðir um Eyjafjörð í nánast allt sumar á vegum
Ferðafélags Akureyrar.

Hér má sjá dagskrá "Gönguvika 2022" , dagskráin 2023 mun birtast hér þegar nær dregur

21. júní. Sumarsólstöður á Þengilhöfða

Brottför kl. 21 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Roar Kvam
Ekið á einkabílum til Grenivíkur þar sem gangan hefst og er gengið eftir götuslóða upp á höfðann. Ferð við flestra hæfi. Vegalengd alls 4 km. Gönguhækkun 260 m. Þátttaka ókeypis.

 

22. júní. Skjaldarvík - Gásir

Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Björn Vigfússon
Gengið er frá Skjaldarvík meðfram fallegri strönd Eyjafjarðar að Hörgárósum þar sem Gáseyri skagar út í sjóinn. Misjafnt gönguland, fjara, tún, slóðar og gróið land. Gásir við Eyjafjörð var verslunarstaður á miðöldum og má sjá þar friðlýstar fornleifar. Gengið um svæðið, rýnt í söguna og ummerki fornrar byggðar skoðuð. Vegalengd um 7 km. Gönguhækkun óveruleg.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

 

23. júní. Kræðufell. Sólstöðuganga

Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Roar Kvam
Gengið er á fjallið frá bílastæðinu á Víkurskarði og er þá fylgt stikaðri leið á Ystuvíkurfjall þar sem sveigt er til norðurs, stefnt á Kræðufell. Af fjallinu er mjög gott útsýni yfir til byggðarinnar vestan fjarðarins og til Hríseyjar. Vegalengd alls um 12 km. Gönguhækkun 400 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

 

24. júní. Jónsmessuganga á Múlakollu

Brottför kl. 20 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Bernard Gerritsma og Bóthildur Sveinsdóttir
Gengið upp á Múlakollu frá gamla Múlaveginum, upp dalinn norðan Brimnesár. Geysimikið útsýni til allra átta er af hátindi kollunnar. Vegalengd 8 km. Gönguhækkun 930 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

 
Sjá nánari upplýsingar hér.

Hvenær
19. - 23. júní
Hvar
Strandgata 23, Akureyri