Til baka

Gönguvika. Miðnæturganga á Miðvíkurfjall

Gönguvika. Miðnæturganga á Miðvíkurfjall

Gengið er frá bílastæði í Víkurskarði upp hlíðina meðfram læknum.

21. júní, sunnudagur

Brottför kl. 22 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir

Miðvíkurfjall (560 m hátt). Ekið er áleiðis upp í Víkurskarð og bílum lagt á lítið bílastæði sem þar er. Þaðan er gengið upp hlíðina meðfram læknum og stefnan tekin á hnjúkinn. Fallegt útsýni er yfir Eyjafjörðinn vestanverðan og út til hafsins. Ljúft að njóta fallegra síðkvölda á þessu fjalli. Sama leið farin til baka.

Vegalengd alls um 4 km. Gönguhækkun er 320 m.

Hvenær
sunnudagur, júní 21
Klukkan
22:00-00:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
Þátttaka ókeypis