Til baka

Gönguvika: Þingmannavegur

Gönguvika: Þingmannavegur

Ferðafélag Akureyrar

Þingmannavegur

Brottför kl. 18 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jóhanna Ásmundsdóttir
Ekið að Systragili í Fnjóskadal. Þaðan verður gengið yfir Vaðlaheiði, komið niður við Eyrarland Eyjafjarðarmegin. Þetta er gömul þjóðleið og því tilvalið að skoða gömlu steinbrúna, grjóthleðslu frá 1871. Að mestu er gengið eftir slóðum. Endað er á því að ganga frá Eyrarlandi að Skógarböðunum þar sem gert er ráð fyrir að borða á Skógur Bistro og fara í Skógarböðin á eftir. Rútan sækir svo hópinn kl. 22. Ef fólk vill skilja eftir bíla við Skógarböðin í upphafi ferðar þá er hægt að taka rútuna þaðan.
Vegalengd alls um 13 km. Gönguhækkun um 530 m.
Verð: 6.500/8.000. Innifalið: Rúta og fararstjórn. Ekki innifalið: Matur og aðgangur að Skógarböðunum.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
fimmtudagur, júní 20
Klukkan
18:00-22:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
6.500/8.000