Til baka

Gönguvika: Uppsalahnjúkur

Gönguvika: Uppsalahnjúkur

Gengið er frá sumarhúsinu Seli til suðurs upp á hnjúkinn.

25. júní, fimmtudagur

Brottför kl. 17 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Arnar Bragason

Ekið er að Öngulstöðum 4 og þaðan að sumarhúsinu Seli. Gengið er til suðurs upp á Haus þar sem er varða og áfram inn eftir fjallinu um greiðfær holt og stefnt austanvert við hnjúkinn. Síðan er gengið upp norðaustur hrygg fjallsins uns komið er á hnjúkinn. Útsýni hér er mikið yfir héraðið.

Vegalengd: 9 km. Gönguhækkun: 870 m.

Hvenær
fimmtudagur, júní 25
Klukkan
17:00-22:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
Þátttaka ókeypis