Til baka

GÓSS

GÓSS

Tónleikar

Hljómsveitin GÓSS (Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar)
verður á flakki víða um land í júlí til að fagna sumrinu og stoppar að
sjálfsögðu við á sínum uppáhalds tónleikastað, Græna hattinum á Akureyri,
þriðjudaginn 21. júlí.

Hljómsveitin GÓSS hefur slegið í gegn með
tónleikum sínum um land allt, en einnig vakti fyrsta breiðskífa sveitarinnar,
Góssentíð, mikla athygli og var m.a. tilnefnd sem plata ársins á Íslensku
tónlistarverðlaununum. Nýlega kom síðan út ábreiða af laginu Sólarsamba og hefur
hún vægast sagt slegið í gegn á öldum ljósvakans sem og annars staðar.

Á tónleikum GÓSS verður boðið upp á létt og skemmtilegt prógramm þar sem
aðalmarkmiðið er að skapa hugljúfa kvöldstund fyrir tónleikagesti.

Hvenær
þriðjudagur, júlí 21
Klukkan
21:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar

graenihatturinn.is