Til baka

Gunni og Felix - Ein stór fjölskylda

Gunni og Felix - Ein stór fjölskylda

Kl. 20.00-20.30 - Viðburður sem kemur öllum fjölskyldum í stuð í tilefni Akureyrarvöku.

Gunni og Felix koma öllum í stuð með skemmtilegum tónleikum þar sem allir geta sungið og dansað með! Þessir síungu fjörkálfar hafa nú starfað saman í næstum 30 ár og gefið út ógrynnin öll af tónlist, sögum og sjónvarpsefni sem þjóðin þekkir.

Reynið bara að standa kyrr á meðan þeir félagar syngja Vaska vaska, Djiddum!, Ein stór fjölskylda eða Fiskurinn hennar Stínu. Mottó þeirra Gunna og Felix er að koma öllum í gott skap, enda verður heimurinn betri þegar börnin og hinir fullorðnu hlæja og skemmta sér saman!


Viðburðurinn er styrktur af Akureyrarvöku.

Hvenær
laugardagur, ágúst 27
Klukkan
20:00-20:30
Hvar
Svið 2 - Listagilið
Verð
Enginn aðgangseyrir