Ykkur er boðið til notalegrar hádegisstundar í Pennanum Eymundsson í Hafnarstræti föstudaginn 4. desember kl. 12.00.
Þrjú ljóðskáld að sunnan koma í heimsókn og lesa upp úr nýútgefnum verkum sínum en þær hafa allar vakið mikla athygli í jólabókaflóði ársins. Skáldin sem fram koma eru:
• Védís Eva Guðmundsdóttir les upp úr Brotnum línum,
• Melkorka Ólafsdóttir les upp úr Hverfu,
• Ragnheiður Harpa Leifsdóttir sem les upp úr Deig en hún er jafnframt handhafi bókmenntaverðlauna Tómasar Guðmundssonar 2026.
Höfundar árita bækur sem verða á tilboðskjörum á staðnum eftir upplestur. Tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi og strika nokkrar jólagjafir af listanum.
Þessi viðburður er styrktur af Skáld Akureyri Curio Collection og með framlagi úr Menningarsjóði Akureyrarbæjar.