Til baka

Halló, við erum frá Úkraínu!

Halló, við erum frá Úkraínu!

Frumsamið dansverk til styrktar Úkraínu í Menningahúsinu Hofi.

Þann 28. júní næstkomandi kl. 18 verður boðið upp á frumsamið dansverk í Menningarhúsinu Hofi til styrktar börnum og læknum í Úkraínu. Sýningin er öllum opin og hentar sérstaklega vel fjölskyldum og börnum.

Skipuleggjendur eru dansarinn Alona Perepelytsia, fjölskylda hennar og flóttamenn frá Úkraínu. Hópurinn hefur þegar sýnt á Austurlandi og hyggst sýna nokkrum stöðum á landinu og nú eru þau mætt til Akureyrar í tengslum við Listasumar.

Á Íslandi búa nú margir skapandi einstaklingar frá Úkraínu og hópurinn sem stendur að sýningunni vildi finna leið til að aðstoða samlanda sína í heimalandinu og um leið að þakka íslensku þjóðinni fyrir einlægar móttökur á flóttafólki þaðan. Allt listafólkið gefur vinnu sína sem framlag til söfnunarinnar.

Sýningin hefst kl. 18 og er aðgangur er ókeypis. Tekið verður á móti frjálsum framlögum við innganginn og þeir sem vilja styrkja söfnunina geta gert það með innleggi á söfnunarreikning hópsins:

Kennitala: 310391-3369
Reikningsnúmer: 0569-26-003103


Viðburðurinn er hluti af Listasumri og styrktur af Akureyrarbæ í samvinnu við Menningarhúsið Hof.

Hvenær
þriðjudagur, júní 28
Klukkan
18:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Frjáls framlög við hurð