Til baka

Handverkshátíð Hrafnagili

Handverkshátíð Hrafnagili

5.-8. ágúst 2021

Handverkshátíðin verður næst haldin 5.-8. ágúst 2021

Handverkshátíðin verður nú haldin í 28. sinn. Um 100 hönnuðir og handverksfólk selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir. 

Njóttu dagsins með okkur í Eyjafjarðarsveit.
Við erum í Hrafnagilsskóla 10 km sunnan við Akureyri.

Opið fim.- sun. kl.11-18

 

Upplýsingar um viðburði og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimasíðu, fésbókarsíðu Handverkshátiðar og Instagram.

Nánari upplýsingar er hægt að fá á handverk@esveit.is

Símanúmer 867-2357 (Heiðdís Halla) og 847-0516 (Kristín Anna)

Hvenær
5. - 8. ágúst
Hvar
Hrafnagil