Til baka

Hannyrðapönk í almenningsrými

Hannyrðapönk í almenningsrými

Helgina 3. og 4. júlí verður Sigrún hannyrðapönkari með 2 stakar smiðjur um hannyrðapönk í almenningsrými.

 

Hannyrðir/handverk + pönk = Hannyrðapönk

Hannyrðapönk er frjálsleg þýðing á enska orðinu „craftivism“, sem er samsett úr ensku orðunum craft + activism, og lýsir því er fólk notast við handavinnu í aktívisma sínum

Hannyrðagraff er samnefnari fyrir nokkur hugtök og lausleg þýðing á m.a. yarn bombing ,yarnbombing, yarn storming, guerrilla knitting, kniffiti, urban knitting eða graffiti knitting.

Hannyrðagraff lýsir þvi þegar fólk notar hannyrðir á borð við prjón, hekl eða útsaum til að hafa áhrif á samferðafólk sitt með götulist.

Í smiðjunum Hannyrðapönk í almenningsrými mun Sigrún Bragadóttir hannyrðapönkari fara yfir grunnatriði útsaums. Einnig skoðum við hvernig er hægt að graffa almenningsrými bæði með nýjum og gömlum útsaumi og þannig stuðla gegn sóun textíls með afturnýtingu.

Hver og ein manneskja sem vill láta gott af sér leiða með handavinnu, handverki og/eða hannyrðum sínum geti starfað undir formerkjum hannyrðapönksins. Engrar sérkunnáttu er krafist.

 

Smiðjurnar eru tilvaldar fyrir fjölskyldur og allt hráefni á staðnum.

 

Smiðjurnar verða á Barr kaffihúsi í Hofi, milli 13 og 17.

 

 


Viðburðurinn er hluti af Listasumri

 

Hvenær
3. - 4. júlí
Klukkan
13:00-17:00
Hvar
Menningarhúsið Hof, Strandgata, Akureyri
Verð
Ekkert þátttökugjald