Undanfarin ár hefur Háskóladagurinn aðeins farið fram á höfuðborgarsvæðinu. Nú verður sú nýbreytni á að Háskóladagurinn verður einnig haldinn í Háskólanum á Akureyri laugardaginn 7. mars milli kl. 13-16.
Allir háskólar landsins kynna námsframboð sitt, sem telur yfir 500 námsleiðir, og námsráðgjafar verða á staðnum. Samhliða því verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Meðal þess sem verður á dagskrá eru örfyrirlestrar, kynningar á starfsemi ýmissa stofnanna á háskólasvæðinu, ásamt skemmtilegum uppákomum frá öllum háskólunum.
Nánari upplýsingar um Háskóladaginn má nálgast á vefsíðu háskóladagsins.
Dagskránna verður hægt að nálgast á næstu dögum.
Langar þig í háskólanám? Ef svarið er já, þá viltu ekki missa af þessu einstaka tækifæri.
ALLIR VELKOMNIR!
www.haskoladagurinn.is
www.facebook.com/haskoladagurinn
www.instagram.com/haskoladagurinn
#hdagurinn