Til baka

Hekla Björt Helgadóttir - gjörningur í Listasafninu á Akureyri

Hekla Björt Helgadóttir - gjörningur í Listasafninu á Akureyri

Gjörningur v. samsýningarinnar Mitt rými

Laugardaginn 12. júlí kl. 15 verður boðið upp á gjörning Heklu Bjartar Helgadóttur í Listasafninu á Akureyri í tengslum við þátttöku hennar í samsýningu norðlenskra listamanna, Mitt rými, en viðburðurinn er hluti af Listasumri á Akureyri.

Í gjörningnum, sem ber heitið Höfuðið hús, snertir Hekla Björt á sambandi húsa og sála og hvernig manneskjan myndar tengsl við steypu, fjalir og húsmuni á persónulegan hátt. Hún leiðir gesti inn í huglæg hús og víkkar þannig út rými áhorfenda. Gjörningurinn tengist verkum Heklu, Eyðibýli, með beinum hætti en þau tilheyra fyrrnefndri sýningu norðlenskra listamanna, Mitt rými, sem nú er yfirstandandi á Listasafninu.

Hekla Björt Helgadóttir vinnur jöfnum höndum sem myndlistarmaður og skáld. Verk hennar eru einlæg, hnyttin og draumkennd og oft undir sterkum áhrifum frá gjörningalist og leikhúsi. Hekla hefur sett upp einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum og gjörningaviðburðum. Einnig er hún einn af stofnendum og starfrækjendum listahópsins Kaktuss á Akureyri.

 


Viðburðurinn er hluti af Listasumri 2025

Hvenær
laugardagur, júlí 12
Klukkan
15:00-16:00
Hvar
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti, Akureyri
Verð
Ókeypis aðgangur