Til baka

Helgarferð á Herðubreið 16 - 18 ágúst

Helgarferð á Herðubreið 16 - 18 ágúst

Ferðafélag Akureyrar

Helgarferð á Herðubreið

Brottför kl. 17 á einkabílum (góðum jeppum) frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jónína Sveinbjörnsdóttir
Árleg ferð FFA á þjóðarfjallið Herðubreið (1682 m). Gist í Herðubreiðarlindum, í skála FFA eða í tjaldi. Nauðsynlegt er að vera á jeppum sem komast að uppgöngunni á Herðubreið. Hjálmur er nauðsynlegur öryggisbúnaður. Ef annar búnaður er nauðsynlegur lætur fararstjóri vita áður en ferð er farin.

1.d., föstudagur: Lagt af stað frá Akureyri kl. 17. Ekið í Herðubreiðarlindir, gist þar.

2.d., laugardagur: Gengið á Herðubreið. Gist aðra nótt í Herðubreiðarlindum.

3.d., sunnudagur: Haldið heim. Gert er ráð fyrir að koma til Akureyrar seinnipart dags.

Gönguhækkun 1000 m.
Verð: Í skála 19.500/24.500. Í tjaldi 14.500/16.500. Innifalið: Gisting í tvær nætur og fararstjórn.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 5.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka.
Þessa ferð þarf að greiða að fullu fyrirfram, þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.

Hvenær
föstudagur, ágúst 16
Klukkan
17:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
19.500/24.500. Í tjaldi 14.500/16.500.