Til baka

Helgarferð: Skíðaganga í Laugafell 3. - 5. maí

Helgarferð: Skíðaganga í Laugafell 3. - 5. maí

Ferðafélag Akureyrar

Helgarferð: Skíðaganga í Laugafell

Brottför kl. 13 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Aðalsteinn Árnason og/eða Halldór Halldórsson.
Um er að ræða þriggja daga vetrarferð sem krefst viðeigandi vetrarbúnaðar. Gist verður í skálunum Berglandi og Laugafelli.

1. d., föstudagur: Hólsgerði-Bergland
Ekið að Hólsgerði og skíðin spennt á gönguhópinn. Gist í Berglandi.
Vegalengd 15 km. Hækkun 840 m.

2. d., laugardagur: Bergland-Laugafell
Vegalengd um 20 km. Gönguhækkun óveruleg.
Ef veður er gott þá verður gengið um Sesseljubæ í Geldingsárdrögum á leiðinni í Laugafell. Laugin í Laugafelli bíður ylvolg eftir lúnum göngumönnum. Gist í Laugafelli.
Vegalengd um 20 km. Gönguhækkun óveruleg.

3. d., sunnudagur: Laugafell-Hólsgerði
Vegalengd 35 km, töluvert undan fæti í lok dags.
Stefnt á að vera komin að fremsta bæ í Eyjafirði fyrir myrkur.
Vegalengd: 35 km, töluvert undan fæti í lok dags.

Hámarksfjöldi 10 manns.

Um vetrarferð er að ræða og þurfa þátttakendur að vera útbúnir samkvæmt því. Nauðsynlegur búnaður eru utanbrautarskíði með stálköntum, hlýr fatnaður, hlýir skór, bakpoki eða púlka.
Verð: 13.000/16.500. Innifalið: Gisting í tvær nætur og fararstjórn.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
föstudagur, maí 3
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
13.000/16.500.