Til baka

Helgi og Hljóðfæraleikararnir

Helgi og Hljóðfæraleikararnir

Konsert fyrir tónleikaplötu

Konsert fyrir tónleikaplötu

Helgi og Hljóðfæraleikararnir hafa að undanförnu verið að endurútgefa plötur og setja eldra efni á Spotify. Nú hefur verið tilkynnt að á næsta ári stefnir bandið á að gefa út tónleikaplötur. Enda hafa ýmsir látið í veðri vaka að þótt H&H njóti sín alltaf vel, þá njóti bandið sín ekki hvað síst og jafnvel best á tónleikum.

Tónleikaplatan verður tvöföld og verður annar helmingurinn helgaður hinum rafmagnaða og hrjúfa vír sem einkennt hefur margar plötur H&H. Hin platan verður tileinkuð hinu akústíska og ljúfa stáli sem glittir alltaf í inn á milli, og var ekki hvað síst fyrirferðarmikið upp úr aldamótum.

Helgi & Hljóðfæraleikararnir ætla því að vera með tvo tónleika á Græna hattinum fyrir lok árs til að eiga nóg í sarpinum fyrir útgáfuna. Fyrri tónleikarnir voru 17. nóvember nk. Þar spilar akústíska versjónin af H&H (Hamingju-útgáfan), kassagítar, nikka, flauta og fiðla. Á seinni konsertnum verður keyrt í botn, rokk og rafmagn, með háttbundnum hætti þann 30. desember.

Bandið gerir kröfu um alvöru mætingu: Þ.e. veruleg læti og gleði til að fanga stemninguna til fulls. Enda stefnt á að þetta verði einhver albesta plata H&H fyrr og síðar.

Hvenær
föstudagur, desember 30
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
3900