Til baka

Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja - 14.-17. júlí

Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja - 14.-17. júlí

Ferðafélag Akureyrar

Herðubreiðarlindir - Bræðrafell - Askja

Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Fjóla K. Helgadóttir og Hjalti Jóhannesson.
Ekið með rútu í Herðubreiðarlindir. Gist er í skálum FFA við Bræðrafell og Drekagil. Bera þarf allan farangur og því mikilvægt að huga að því sem tekið er með. Svæðið sem farið er um státar af fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð. Nálægðin við Herðubreið hefur líka sín áhrif.

1.d., sunnudagur: Ekið í Herðubreiðarlindir. Eftir kaffi er gengið um greiðfært hraun í Bræðrafell og gist þar. Taka þarf með vatn til dagsins.
Vegalengd: 19 km.

2.d., mánudagur: Gengið á Kollóttudyngju og Bræðrafell skoðað. Gist í Bræðrafellsskála aðra nótt.
Vegalengd: 8-12 km.

3.d., þriðjudagur: Gengið frá Bræðrafelli í Drekagil. Gist í skála FFA við Drekagil.
Vegalengd: 21-22 km.

4. d., miðvikudagur: Gengið frá Drekagili yfir Dyngjufjöll að Öskju. Ekið heim um kvöldið.
Vegalengd: 10-11 km.

Hámarksfjöldi 14 manns.

Verð: 64.000/69.000. Innifalið: Rúta, gisting í þrjár nætur og fararstjórn.
Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 10.000 í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka.
Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu fyrirfram, 10 dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.

Hvenær
sunnudagur, júlí 14
Klukkan
08:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
64.000/69.000