Ísland fékk nýjan svip með hernáminu. Sú værð sem hafði ríkt yfir mannlífinu vék fyrir daglegum stórtíðindum. Þrammandi hermenn, hraðskreið farartæki, skipamergð, drynjandi flugvélar, sírenuvæl, sprengjuhvellir og geltandi byssur - allt þetta blandaðist saman við lúðraþytinn, gosdrykkina og glaðværðina sem ríkti meðal dáta á frívakt. Samfélagið gjörbreyttist á fáeinum árum sem kom hvað best fram hjá unga fólkinu. Unglingamenning tók að skjóta rótum, tími stælgæjans og skvísunnar var runninn upp. Leifur Reynisson sagnfræðingur fléttar þá sögu saman með litríkum frásögnum í bók sinni Hernámsæskan.
Hvar: Minjasafnið á Akureyri – Aðalstræti 58
Hvenær: fimmtudaginn 22. október kl. 17.
Aðgangur ókeypis