Til baka

Hinsegin hátíð

Hinsegin hátíð

Norðurlandi eystra

Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra verður haldin dagana 18. - 22. júní nk.

Markmið hátíðarinnar er að auka sýnileika LGBTQ+ samfélagsins og byggja upp samfélag sem er opið og öruggt fyrir alla íbúa og gesti. Hátíðin byggir á því góða starfi sem unnið hefur verið í Hrísey en fyrsta Hinsegin hátíðin í Hrísey var haldin árið 2023.

Öll sveitarfélögin á Norðurlandi eystra, ásamt samtökunum Hinsegin Norðurland og Hinsegin hátíðinni í Hrísey standa að hátíðinni. Samstarfsaðilarnir vinna saman að undirbúningi hátíðarinnar, sem er hugsuð þannig að viðburðir fari fram á öllu svæðinu.

Verkefnið Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Sóknaráætlunar Norðurlands eystra.

Viðburðadagatal hátíðarinnar er að finna á www.hinseginhatid.is

Við hvetjum einstaklinga, félög og fyrirtæki til þess að taka þátt í þessari einstöku hátíð með því að flagga regnbogafánum og jafnvel standa fyrir viðburði í tengslum við hátíðina.

Fylgið endilega hátíðinni á facebook og instagram og endilega taggið okkur í story og færslum yfir hátíðina. 

 

Hvenær
18. - 22. júní
Hvar
Northeastern Region