Til baka

Hinsegin söguganga á Akureyri

Hinsegin söguganga á Akureyri

Fræðstu um sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi í þessari ókeypis sögugöngu

Viltu fræðast um sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi? Ókeypis sögugöngu um Akureyri.

Viðburðurinn er hluti af Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra 2026 og fer fram föstudaginn 19. júní næstkomandi.

Mæting er við Minjasafnskirkjuna og farið verður af stað þaðan klukkan 16:30. Áætlað er að gangan taki u.þ.b. 2 til 2,5 klukkustundir. Gestir eru vinsamlega beðnir um að mæta á staðinn 5-10 mínútum fyrir áætlaðann brottfarartíma.

Um er að ræða létta göngu um Innbæinn og miðbæinn þar sem sögufrægir staðir á Akureyri verða heimsóttir. Á leiðinni segir leiðsögumaður frá sögu hinsegin samfélagsins á Íslandi með sérstakri áherslu á Akureyri, samfléttaðri við bæjarsögu Akureyrar.

Leiðsögumaður er Rúnar Freyr Júlíusson. Hann er menntaður leiðsögumaður sem hefur, ásamt Ásu Sóley meðskipuleggjanda sínum, kynnt sér þetta viðfangsefni til þaula undanfarnar vikur

Ferðin er algjörlega ókeypis og engin skráningarskylda, bara mæta á staðinn! Þeir sem ætla sér að mæta eru þó vinsamlegast beðnir um að melda sig, ef þeir geta, á Facebook viðburðinn okkar: (Hlekkur)

Gönguferðin verður endurtekin með enskri leiðsögn laugardaginn 20. júní. Sami brottfarartími og upphafsstaður. Nánari upplýsingar er að finna á sér viðburði fyrir enskumælandi ferðina. Sjá Hér.

Hvenær
föstudagur, júní 19
Klukkan
16:30
Hvar
Minjasafnskirkjan
Verð
Enginn aðgangseyrir