Við höfum verið að skoða arfinn, íslenskuna, lög, ræturnar, innri gleði, leyndardóma og náttúruna að undanförnu og viljum deila með ykkur nokkrum fjársjóðum úr þeim leiðangri á hápunkti náttúrulegrar hringrásar, sumarsólstöðum. Við sömdum allar tónlist og einnig verða flutt vel valin íslensk lög/ljóð. Gongin munu umvefja með hljómfalli í lokin. Hreinn kakóbolli (hjartameðal) í boði.
Við þökkum Akureyrarstofu fyrir stuðninginn og Daníel Starrasyni fyrir myndirnar.
Miðasala hafin á tix.is
Ykkar Arnbjörg Kristín, Fanney Kristjáns og Harpa Barkar