Til baka

Hjóla- og gönguferð með FFA

Hjóla- og gönguferð með FFA

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23 en ekki sameinast í bíla nema þeir sem ferðast saman, t.d. frá sama heimili.
Fararstjórar: Stefán Sigurðsson og Ingimar Árnason.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum.
Stefnt er að því að hjóla hringinn í Svarfaðardal sem er 26 km. Hækkun á leiðinni er óveruleg. Stoppað verður á nokkrum stöðum þar á meðal við Húsabakka og gengið yfir í friðland Svarfdæla og yfir hengibrúna sem liggur yfir í Hánefsstaðaskóg. Þar snæðir fólk nesti. Hjólað til baka að bílunum. Gert er ráð fyrir að ferðinni ljúki um kl. 13. Hafið með ykkur nesti og góðan hlífðarfatnað.
Munið að skrá ykkur á ffa.is: https://www.ffa.is/is/vidburdir/ovissuferd-hjola-og-gonguferd-1

Hvenær
laugardagur, maí 23
Klukkan
08:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Nánari upplýsingar