Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum (18+)
Aldrei of seint að byrja
Tveggja tíma hjólabrettahitting/session þar sem byrjendur sem lengra komin geta mætt og haft gaman með skemmtilegum hópi. Leiðbeinendur verða á staðnum til aðstoðar og gefa góð ráð. Tilvalið fyrir þau sem langar til að prófa eitthvað nýtt eða læra meira.
Leiðbeinandi verður meðal annars Eiki Helgason brettakappi, sem er Akureyringum vel kunnur, og á að baki langan feril í brettaíþróttum.
Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti. Athugið að takmarkað magn lánsbretta er í boði.
*Mikilvægt er að mæta í góðum strigaskóm.
Hjólabrettahittingur með leiðbeinendum er fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði. Aðra miðvikudaga er Kvöldsession Old Skate hópsins.
Viltu bætast í Old Skate hópinn? Sjá nánar hér:
https://www.facebook.com/groups/521820188823122/_________________________________
Hittingur fyrir: Byrjendur sem lengra komna
Dagsetning: Fyrsta miðvikudag í hverjum mánuði
Tími: 20.00-22.00
Aldur: 18+
Staðsetning: Braggaparkið, Laufásgata 1
Þátttökugjald: 2.000 kr. (1.000 kr. fyrir korthafa) Greitt á staðnum. Posi eða peningur.
__________________________________
Viðburðurinn er styrktur af Birtu CBD og Sjoppunni vöruhúsi.