Til baka

Hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur

Hjólabrettanámskeið fyrir byrjendur

Spennandi tveggja daga byrjendanámskeið fyrir stráka og stelpur, frá 6 ára aldri, sem vilja taka sín fyrstu skref á hjólabretti.
Spennandi tveggja daga byrjendanámskeið fyrir stráka og stelpur, frá 6 ára aldri, sem vilja taka sín fyrstu skref á hjólabretti. Farið verður í öll helstu grunnatriði íþróttarinnar. Sem dæmi má nefna hvernig á að standa, ýta sér, snúa við og jafnvel “olla”. Skipt verður í hópa eftir getu og yfirkennari námskeiðisins er Eiki Helgason brettakappi, sem er Akureyringum vel kunnur, og á að baki langan feril í brettaíþróttum. Með honum verða vel valdir kennarar sem eiga það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á hjólabrettaíþróttinni.
 
Mælt er með því að þátttakendur komi með sitt eigið hjólabretti en möguleiki er á að fá lánsbretti. Taka skal fram í skráningu ef beðið er um lánsbretti. Takmarkað magn lánsbretta er í boði.
 
*Tekið skal fram að vegna Covid-19 takmarkana verða kennarar með grímur og reglum um sóttvarnir fylgt.
 
Námskeið fyrir: Byrjendur
Dagsetning: 8.-9. ágúst (laugardagur og sunnudagur)
Tími: 9.00 - 12.00 báða daga
Aldur: 6+
Staðsetning: Braggaparkið, Laufásgata 1
 
Hvenær
8. - 9. ágúst
Klukkan
09:00-12:00
Hvar
Laufásgata 1, Akureyri
Nánari upplýsingar
Þátttökugjald: 7.000 kr.
Skráning: https://rosenborg.felog.is/
*Kvittun skal senda á braggaparkid@gmail.com