Hnotan - Handavinnuklúbbur Amtsbókasafnsins
Yfir vetrartímann hittist handavinnuklúbburinn Hnotan á Amtsbókasafninu annan hvern fimmtudag og er öllum velkomið að taka þátt, hvort sem um ræðir eitt skipti eða öll.
Við hittumst á Orðakaffi, á Amtsbókasafninu, þar sem er upplagt að fá sér kaffi og köku til að njóta með handavinnunni.
Hvert og eitt kemur með efni og verkfæri að heiman.
Svala Hrönn Sveinsdóttir, verkefnastjóri, verður á staðnum með handavinnubækur og tímarit.
Komum saman og eigum huggulega handavinnustund í góðum félagsskap.