Til baka

Hr. Eydís

Hr. Eydís

Alvöru 80´s partý á Græna hattinum
Alvöru ´80s partý með Hr. Eydís
Gestasöngvari Erna Hrönn Ólafsdóttir.
Hljómsveitin Hr. Eydís sem sérhæfir sig í bestu 80´s lögunum kemur aftur á Græna hattinn og blæs til alvöru ´80s veislu laugardaginn 29.júní
Þvílík sem stemningin var síðast og ekki verður hún minni núna.
Komdu og upplifðu þennan skrautlega áratug í allri sinni dýrð, viðburð sem enginn sannur 80´s aðdáandi ætti að láta framhjá
sér fara. Hljómsveitina skipa þeir Örlygur Smári, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.
Ath. að uppselt var í síðusta ´80s partý hjá Hr. Eydís.
Ef þú vilt forsmekkinn af lögunum þá er rás félaganna á YouTube hér: https://www.youtube.com/@eydisband
Sjáumst hress á Græna hattinum.
 
Hvenær
laugardagur, júní 29
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
5900