Til baka

Hr. Eydís & Erna Hrönn - Alvöru 80´s partý

Hr. Eydís & Erna Hrönn - Alvöru 80´s partý

Alvöru 80´s partý á Græna Hattinum

Hr. Eydís og Erna Hrönn snúa aftur á Græna hattinn föstudaginn 1. maí. Síðast var uppselt og allt á suðupunkti og nú er komið að næstu umferð. Komdu og upplifðu þennan skrautlega áratug í allri sinni dýrð, tónleikapartý sem enginn sannur ’80s aðdáandi má láta framhjá sér fara. Hlökkum til að sjá ykkur!

Hljómsveitina skipa þau Erna Hrönn Ólafsdóttir, Örlygur Smári, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason auk Sveins Pálssonar sem verður Hr. Eydís til halds og traust með gítarleik og bakraddir.

Ef þú vilt fá forsmekkinn af því sem er í vændum má finna lögin á YouTube-rás Hr. Eydís:

https://www.youtube.com/@eydisband

Hvenær
föstudagur, maí 1
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
grænihatturinn
Verð
6990