Til baka

Hr. Eydís & Hera Björk

Hr. Eydís & Hera Björk

Alvöru 80´s partý um verslunarmannahelgina

Hr. Eydís og Hera Björk – Alvöru ’80s partý á Græna hattinum um verslunarmannahelgina.

Laugardagskvöldið 2. ágúst snýr hljómsveitin Hr. Eydís aftur á Græna hattinn og býður upp á tryllt ’80s tónleikapartý!

Stemningin síðast var algjörlega sturluð og ekki verður hún síðri um verslunarmannahelgina! Komdu og upplifðu þennan litríkasta áratug tónlistarsögunnar í allri sinni dýrð. Þetta er viðburður sem enginn sannur ’80s aðdáandi má láta fram hjá sér fara.

Sérstakur gestur kvöldsins í þetta skiptið er engin önnur en söngdívan Hera Björk og ef einhver er vel að sér í ’80s lögum, þá er það hún!

Hr. Eydís eru: Örlygur Smári, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason. Með í för verður Sveinn Pálsson á rafgítar og bakraddir, traustur bakhjarl hljómsveitarinnar.

Tryggðu þér miða í tíma!

Hvenær
laugardagur, ágúst 2
Klukkan
21:00-23:30
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Verð
kr. 6.900