Hreyfimyndasmiðja - Björn Heimir Önundarson
Hreyfimyndasmiðja í Kaktus
Opin hreyfimyndasmiðja í Kaktus! Listasumar 2026! Je! Verið með!
Smiðjan byggir á skemmtilegri animation-aðferð sem kallast metamorphosis, eða umbreyting á íslensku, þar sem fígúrur, hlutir eða bara hvað sem ímyndunaraflið kallar fram taka á sig annað form og myndar á endanum heilda lúppu. Í þessu ferli er hægt að sjá töfra teiknimyndagerðar á einfaldan og skemmtilegan máta.
Hópurinn vinnur saman að einni heildarniðurstöðu og fær að kynnast grunninum í analog teiknimyndagerð.
Smiðjustjóri: Björn Heimir Önundarson
Björn Heimir Önundarson, fæddur árið 1996, er listamaður sem starfar í Reykjavík á sviði málverka, myndasagna, teikninga og teiknimynda. Hann útskrifaðist af teiknibraut úr Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2018, stundaði svo animation-nám í Willem de Kooning Academy og stundar nú nám við myndlist í LHÍ. Í verkum sínum notast hann einna helst við narratífu og frásögn sem má rekja til ástar hans
á teiknimyndum og teiknimyndasögum. Hann dregur ma.a innblástur frá
skopmyndateiknurum á borð við Robert Crumb og Ralph Bakshi, og málurum eins og Philip Guston, Chaim Soutine og Otto Dix. Afbökun og fáránleiki eru hans helstu tól til að snúa upp á veruleikann og draga þannig fram hina sönnu óreiðu mannskepnunnar og sturlun heimsins. Verkin hans eru orkumikil, litrík og óstýrilát. Allt er á stöðugri hreyfingu og ekkert er nokkurn tíma alveg í jafnvægi.
Léttar veitingar!
Smiðjan er hluti af Listasumri 2026!
--------------------------------------------
Kaktus er styrktur af SSNE, Myndlistarsjóði, Menningarsjóði Akureyrar og KEA