Til baka

HRINGFERLI

HRINGFERLI

Ragnheiður Björk Þórsdóttir opnar sýningu í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins.

Ragnheiður Björk Þórsdóttir veflistakona opnar sýningu sína HRINGFERLI í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélags Akureyrar í Kaupvangsstræti 12 á Akureyri, Kl 14:00 laugardaginn 16. október nk. Verkin á sýningunni eru ofin í myndvefnaðarstól, vefstól eða stafrænum vefstól og unnin á þessu ári.

Sýningin stendur yfir frá 16. – 24. október og er opin frá kl 14:00 – 17:00 um helgar, en hafa má samband við Ragnheiði í síma 8475133 til að sjá hana virku dagana.

Viðfangsefni Ragnheiðar á þessari sýningu er uppbygging og áferð vefnaðarins og hvernig þáttur uppistöðu og ívafs breytist við val á aðferðum sem notaðar eru í ferlinu. Hún nýtir sér bæði hliðrænar (analog) og stafrænar (digital) aðferðir við vefinn til að ná fram ákveðnu hringferli í verkunum og ferðast þannig frá hinu einfalda til hins flókna. Ragnheiður hefur lengi rannsakað vefnaðarmunstur og uppbyggingu þeirra, setti upp rafrænan gagnagrunn í vefnaði fyrir Textílmiðstöð Íslands og skrifaði bókina Listin að vefa.

Ragnheiður er með vinnustofu á Grenivík og er í hlutastarfi sem sérfræðingur á sviði vefnaðar og stafrænum vef hjá Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi.

 

Hvenær
23. - 24. október
Klukkan
14:00-17:00
Hvar
Mjókurbúðin - salur Myndilstarfélagsins, Kaupvangsstræti 12, Akureyri
Verð
Enginn aðgangseyrir