Hryllileg sögustund
Hrekkjavökusögustund og hrekkjavökuföndur
Laugardaginn 31. október verður kjallaranum á bókasafninu breytt í draugalegan stað!
Ykkur er boðið í sögustund í kjallaranum klukkan 13:00, ef þið þorið!
Eftir lesturinn verður boðið upp á hrekkjavökuföndur í barnadeildinni.
Endilega komið í búning.
Öll velkomin.
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Hjólabogar eru við safnið auk þess sem frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá bókasafninu.