Til baka

Andrésar Andar leikarnir

Andrésar Andar leikarnir

Leikarnir voru fyrst haldnir 1976 og hafa verið árviss viðburður síðan og notið vaxandi hylli.

Andrésar Andar leikarnir verða haldnir 19-23. apríl 2023
Leikarnir voru fyrst haldnir 1976 og hafa verið árviss atburður síðan og notið vaxandi hylli allra sem þar hafa komið nálægt, bæði barna og fullorðinna. Þetta er fjölmennasta skíðamót landsins, hátt í 1.000 keppendur á aldrinum 4 -15 ára keppa í alpagreinum, skíðagöngu og snjóbrettum, að ógleymdri keppni í þrautabraut fyrir yngstu þátttakendurnar.

Fjölmargir skíðamenn eiga ljúfar minningar frá leikum liðinna ára og ekki er óalgengt að sjá fyrrum keppendur mæta brosandi með börnin sín á Andrésar leikana og flestir ef ekki allir okkar bestu skíðamenn byrjuðu sinn keppnisferil þar.

Skíðafélag Akureyrar stendur á bak við leikana og má finna nánari upplýsingar á heimasíðu þeirra og á Facebook síðu leikanna.

Hvenær
19. - 23. apríl
Hvar
Hlíðarfjall