Eru miðaldra konur aðeins einni Temu-pöntun frá fullkominni hamingju? Getur húllahringur virkilega bjargað hjónabandinu? Vantar konur á breytingaskeiðinu kannski bara aðeins meira blóðflæði og persónulegt rými?
Fjölmiðlakonan Snæfríður Ingadóttir fer yfir málin á 15 mínútum í kómísku uppistandi sem segir meira um hamingjuna en öll sjálfshjálparnámskeið sem þú hefur farið á.
„Húllað inn í hamingjuna" er lifandi og frumlegur viðburður þar sem húllahringalist og húmor fléttast saman á skemmtilegan hátt. Viðburðurinn byggir á samspili líkamlegrar tjáningar og frásagnar, þar sem létt og gleðileg stemning ræður för, bæði í hreyfingu og munnlegri tjáningu.
Viðburðurinn er haldinn utandyra við Þingvallastræti 8 (beint á móti Andapollinum). Gestir klæði sig samkvæmt veðri. DJ Ragga heldur uppi góðri stemmingu og sér til þess að viðstaddir dilli sér inn í hamingjuna.
Viðburðurinn er styrktur af Listasumri.