Fimmtudaginn 11. júní mun Listasafnið á Akureyri bjóða hunda velkomna í sérstaka kvöldopnun ásamt eigendum sínum. Opið verður frá kl. 19 til 21 og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda. Léttar veitingar í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Á Ketilkaffi verður hægt að kaupa sérstakar veitingar fyrir besta vininn.
Athugið að í safninu þurfa allir hundar að vera í taumi og eru á ábyrgð eigenda sinna.
Gæludýr.is styrkir Hundakvöld í Listasafninu.