Til baka

Húsavík - Botnsvatn

Húsavík - Botnsvatn

Ferðafélag Akureyrar

Húsavík - Botnsvatn

Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jóhanna Ásmundsdóttir
Ekið til Húsavíkur, bílum lagt við eystri enda íþróttavallarins. Gengið er eftir göngustíg sem liggur í fjallinu bláa, Húsavíkurfjalli. Gengið upp að Botnsvatni og hringinn í kringum vatnið eftir þægilegum göngustíg. Þaðan liggur leiðin niður með ánni og í gegnum Skrúðgarðinn. Mjög falleg leið. Gangan tekur 2-3 klst.
Veitingastaðurinn Naustið tekur á móti hópnum kl. 18:00 með óvæntum réttum og við stefnum á að mæta í Sjóböðin kl. 20. Lagt af stað heim kl. 22.
Vegalengd alls 11 km. Gönguhækkun: 310 m.
Verð: 3.500/5.000. Innifalið: Fararstjórn. Ekki innifalið: Matur og aðgangur að Sjóböðunum.
Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
sunnudagur, september 1
Klukkan
10:00-23:00
Hvar
Strandgata 23, Akureyri
Verð
3.500/5.000