Til baka

Húsavík – Botnsvatn. Haustlitaferð

Húsavík – Botnsvatn. Haustlitaferð

Gengið upp að Botnsvatni við Húsavík og hringinn í kringum vatnið.

19. september, laugardagur

Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Margrét K. Jónsdóttir

Ekið til Húsavíkur. Gengið er eftir göngustíg sem liggur í fjallinu bláa, Húsavíkurfjalli. Gengið upp að Botnsvatni og hringinn í kringum vatnið eftir þægilegum göngustíg. Þaðan liggur leiðin niður með ánni og í gegnum Skrúðgarðinn. Mjög falleg leið. Gangan tekur 2–3 klst. Eftir ferðina geta þau sem vilja gengið út að Gatklettinum við Bakka með fararstjóra. Vegalengd alls 11 km. Gönguhækkun: 310 m.

Verð: 2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.

Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
laugardagur, september 19
Klukkan
10:00-15:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
2.200 / 3.900 kr. Innifalið: Fararstjórn.