Til baka

Hvalvatnsfjörður. Rafhjólaferð

Hvalvatnsfjörður. Rafhjólaferð

Hjólað út Hvalvatnsfjörð frá Gljúfurá á Leirdalsheiði.

16. ágúst, sunnudagur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23

Safnast saman í bíla ef vill.

Fararstjórn: Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson

Ekið verður sem leið liggur í átt að Grenivík og ekið inn á Leirdalsheiði. Hjólin tekin af við Gljúfurá á Leirdalsheiði. Síðan er hjólað út Hvalvatnsfjörð með sínu stórkostlega útsýni. Hjólað í 3–4 klst með stoppum. Gott er að hafa með sér vaðskó þar sem hugsanlega þarf að vaða yfir eitt vatnsfall.

Þeir sem eiga flutningsfestingu fyrir hjól nota hana, aðrir geta fengið hjólin flutt á hjólakerru.

Vegalengd: 37–42 km. Hækkun er töluverð á þessari leið sérstaklega á leiðinni til baka.

Verð: 6.200 / 7.900 kr. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á hjólakerru fyrir þá sem þurfa.

Greitt er fyrir þessa ferð við brottför.

Hvenær
sunnudagur, ágúst 16
Klukkan
08:00-15:00
Hvar
Ferðafélag Akureyrar
Verð
6.200 / 7.900 kr. Innifalið: Fararstjórn og flutningur á hjólum á hjólakerru fyrir þá sem þurfa.