Til baka

Hvanndalsbræður

Hvanndalsbræður

Hvanndalsbræður ætla að henda í tónleika að loknu úrslitakvöldi Ríkissjónvarpsins
fyrir hina einu sönnu Eurovision keppni en það eru einmitt akkúrat 10 ára síðan
bræðurnir boðuðu Gleði og glens í þeirri skemmtilegu keppni. Því ber að fagna.

 

Strákarnir hafa verið inn í æfingarhúsnæði að semja nýtt efni síðan
fyrir jól og nú er komin tími til að leyfa fólki að fá nasaþefinn af nokkrum
þessara laga. Að sjálfsögðu verður nýju lögunum blandað af kostgæfni saman við
gömlu góðu lummurnar.

 

Einhverjar sögur verða látnar fjúka á milli laga og
stefnum við að því að flestir ef ekki allir fari kátir heim.

 

Sjáumst á
Græna hattinum og gerum okkur glaðan dag.

Hvenær
laugardagur, febrúar 29
Klukkan
22:00
Hvar
Græni hatturinn, Hafnarstræti, Akureyri
Nánari upplýsingar