Þetta verður í HUNDRAÐASTA sinn sem bræðurnir leika á Græna hattinum og engu verður til sparað að gera þetta sem glæsilegast.
Prógramið verður tekið til gagngerðrar endurskoðunnar og gamlir hundar dregnir á flot, eftir alltof langt hlè.
Einnig verða frumflutt 1-2 splunku ný lög sem verið er að vinna í þessa dagana.
Strákarnir eru ákveðnir í að hafa þetta allt saman á léttu nótunum og vonst til að fá ykkur með í fjörið, gömul andlit og ný, allir eru velkomnir.